Fréttir | 18. nóvember 2014 - kl. 15:11
Bændafundir Líflands

Lífland hefur um árabil haldið fræðslufundi fyrir íslenska kúabændur. Í ár munu fundirnir verða haldnir á átta stöðum á landinu dagana 24. – 28. nóvember og verður fundur haldinn í Harmonikkusalnum á Blönduósi fimmtudaginn 27. nóvember næstkomandi klukkan 20:30. Aðalfyrirlestur fundanna ber heitið „Hvernig auka má fitu í mjólk á markvissan hátt“. 

Á dagskrá fundanna verður að vanda samantekt á niðurstöðum heysýnagreininga og samanburður við fyrri ár. Þá verður hollenska fóðuráætlunarkerfið NutriOpt kynnt, en ráðgjafar Líflands geta nú útbúið fóðuráætlanir fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. 

Fyrirlesarar verða Gerton Huisman, sérfræðingur hjá Trouw Nutrition í Hollandi, auk ráðgjafa Líflands. Hluti fyrirlestranna mun fara fram á ensku, en verður þýddur jafnóðum á íslensku. Boðið verður upp á veitingar og eru allir velkomnir, að því er segir á vef Líflands.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga