Skjáskot af vef BBC
Skjáskot af vef BBC
Fréttir | 18. nóvember 2014 - kl. 21:32
Frá Nýja Sjálandi til Blönduóss

Árlega ferðast um 30 sláturhússtarfsmenn frá Nýja Sjálandi til Íslands til þess að vinna í sláturhúsum á haustin, meðal annars á Blönduósi. Fréttavefur BBC segir frá löngu ferðalagi nokkurra nýsjálendinganna og lýsir því hvernig þeir ferðast um 22.300 kílómetra leið til Íslands í september og heim aftur að tveimur mánuðum liðnum. Um 40 klukkustundir tekur að fara þessa leið.

Á vef BBC er sagt frá ferðalagi Shawn Parkinson og félaga hans en Parkison hefur komið til Íslands undanfarin sjö haust og starfað í sláturhúsinu á Blönduósi. Parkison býr í Dannevirke á Nýja Sjálandi og keyrir hann fyrst um 530 kílómetra leið til Auckland þaðan sem hann flýgur 2.160 kílómetra leið til Sydney í Ástralíu. Þaðan er flogin 12.050 kílómetra leið til Dubai og svo áfram 5.480 kílómetra leið til London. Leiðin til Keflavíkur frá London er svo um 1.895 kílómetrar. Þá eru eftir um 245 kílómetrar í bíl til Blönduóss. Að ferðast þessa kílómetra alla tekur um 40 klukkustundir.

Parkison segir í viðtali við BBC að þeir væru að öðrum kosti atvinnulausir á þessum árstíma og að þetta sé mikið ævintýri enda séu þeir hinum megin á hnettinum. Parkison og félagar fá greiddan allan ferðakostnað og gistingu og eru kjörin svipuð og á Nýja Sjálandi.

Rætt er við Gunnar Halldórsson, framkvæmdastjóra SAH Afurða sem segir það hagstætt fyrir fyrirtækið að hafa þennan háttinn á. Erfitt sé að fá vel þjálfaða menn til starfa og því sé betra að fá starfsmenn sem kunni vel til verka. Hann segir þetta áreiðanlega starfsmenn sem séu aldrei veikir og sinni starfi sínu 100%.

Hér má sjá frétt BBC.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga