Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:22 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:22 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:22 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:22 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:22 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:22 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Selasetur Íslands hlaut á dögunum styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra vegna verkefnisins Áframhaldandi sókn náttúrutengdrar ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra. Verkefnið nær til hugmynda og hönnunarvinnu á stækkun og endurbótum á sýningu Selasetursins og hugmynda og hönnunarvinnu á útisvæði við Selasetrið sem og á hafnarsvæðinu öllu en það hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Markmiðið með verkefninu er að fá þá ferðamenn sem til Hvammstanga koma til að staldra lengur við í sveitarfélaginu.
Sagt er frá þessu á vef Selasetursins og kemur þar fram að styrkurinn sé upp á sex milljónir króna en heildar kostnaður við verkefnið sé rúmar 13 milljónir.
Samstarfsaðilar Selaseturs í verkefninu eru fjölmargir: sveitarfélagið Húnaþing vestra, Kaupfélag V-Hún, Ferðamálafélag V-Hún, Gauksmýri ehf, Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, Bóka- og skjalasafn V-Hún, Grunnskóli Húnaþings vestra, Ferðamáladeld Háskólans á Hólum, Kidka, Selasigling og Veiðimálastofnun.
Áætlað er að vinna við verkefnið hefjist í lok nóvember og því ljúki um mitt ár 2015. Verkefnisstjóri er Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Selasetursins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |