Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:44 0 0°C
Laxárdalsh. 00:44 0 0°C
Vatnsskarð 00:44 0 0°C
Þverárfjall 00:44 0 0°C
Kjalarnes 00:44 0 0°C
Hafnarfjall 00:44 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Mynd: Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Mynd: Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Tilkynningar | 22. nóvember 2014 - kl. 21:11
Látum sönginn hljóma
Frá kórfélögum

Geisladiskur með söng Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps við undirleik hljómsveitar Skarphéðins H. Einarssonar er kominn í sölu. Árið 2013 var aðalverkefni Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps söngdagskrá með lögum Geirmundar Valtýssonar en lögin eru  útsett  af Rögnvaldi Valbergssyni. Undirleik annaðist hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar. Söngdagskráin fékk frábærar móttökur og  var ákveðið að gefa út  valin lög úr dagskránni.

Geisladiskurinn “Látum sönginn hljóma” var tekinn upp í janúar- júní 2014. Upptökustjóri  var Rögnvaldur Valbergsson og aðalupptökustaður félagsheimilið Húnaver. Á diskinum eru fjórtán lög eftir Geirmund Valtýsson, þar af eitt nýtt lag. Það er lagið “Heilög jól” lag Geirmundar við ljóð Sigurðar Hansen. Einsöngvari í því lagi er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.

“Látum sönginn hljóma” er til sölu hjá kórfélögum  en þeir  munu ganga í hús og bjóða diskinn til sölu. Geisladiskurinn er verðlagður  á 2.000 krónur

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið