Tilkynningar | 24. nóvember 2014 - kl. 17:00
Perusala Lionsfélaga á Blönduósi
Tilkynning frá stjórn

Nú fer hin árlega Perusala fram hjá Lionsmönnum á Blönduósi. Perusalan verður með öðru sniði að þessu sinni en Lionsmenn munu selja perur í anddyri Samkaupa og verða þar dagana 27. -28. nóvember (fimmtudag og föstudag) frá kl. 16:00-19:00.

Á síðasta ári styrkti Lionsklúbbur Blönduóss meðal annars eftirtalin verkefni: Júdófélagið Pardus, Dreifnám A-Hún. og Hestamannafélagið Neista, unglingastarf. Með fyrirfram þökk fyrir góðar viðtökur.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga