Tilkynningar | 25. nóvember 2014 - kl. 09:17
Sauðfjárslátrun 27. nóvember
Frá SAH Afurðum

Sauðfjárslátrun verður fimmtudaginn 27. nóvember hjá  SAH Afurðum á Blönduósi. Þeir sem vilja nýta sér þann dag eru beðnir um að panta tíma hjá Gísla í síma 896-2280 fyrir klukkan 16 miðvikudaginn 26. nóvember næstkomandi.

Eins og áður hefur kom fram í fréttum er sauðfjársláturtíð að baki hjá okkur og allt gekk mjög vel fyrir sig. Fjölgun var hjá okkur um rúm 2000 fjár auk þess sem fallþungi hækkaði um 400 grömm milli ára. Heildar sauðfjárslátrun 2014 var því um 105 þúsund. Við þökkum innleggjendum fyrir viðskiptin og starfsfólki okkar fyrir vel unnin störf.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga