Fréttir | 25. nóvember 2014 - kl. 13:58
Ný Vínbúð opnuð á Hvammstanga

Ný og glæsileg Vínbúð var opnuð á Hvammstanga í síðustu viku, en töluverðar breytingar hafa verið gerðar á búðinni. Nú er ekki lengur afgreitt yfir borð, heldur ná viðskiptavinir sjálfir í sínar vörur eins og í öðrum Vínbúðum. Vínbúðin á Hvammstanga hefur verið starfrækt síðan í júní árið 2000, en hún flutti í núverandi húsnæði í september 2005, í byggingarvörudeild Kaupfélagsins.

Meðfylgjandi mynd er af vef ÁTVR.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga