Fréttir | 25. nóvember 2014 - kl. 20:41
Jólabasar í Skagabúð

Jólabasar Kvenfélagsins Heklu verður í Skagabúð, sunnudaginn 30. nóvember næstkomandi  frá klukkan 14 til 17. Þar verður ýmislegt til sölu, svo sem jólakort og pappír, ásamt góðu úrvali af heimaunninni vöru. Heitt súkkulaði, piparkökur, muffins og rósettur selt á 700 kr. og frítt fyrir 10 ára og yngri.

Hægt er að panta söluborð hjá Árnýju í síma 452 2745, verð 1.000 kr. fyrir lítið borð og 1.500 kr. fyrir stærra borð. Kvenfélagið Hekla bíður alla hjartanlega velkomna.

Ekki er tekið við greiðslukortum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga