Fréttir | 28. nóvember 2014 - kl. 15:37
USVH óskar eftir ábendingum um íþróttamann ársins

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga óskar eftir ábendingum frá íbúum Húnaþings vestra vegna tilnefningar til íþróttamanns USVH árið 2014. Óskað er eftir ábendingum um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein á árinu. Ábendingarnar skulu berast stjórn USVH fyrir 11. desember næstkomandi.

Hægt er að skila inn ábendingum ásamt greinagerð yfir árangur ársins á skrifstofu USVH að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga, eða með tölvupósti á netfangið usvh@usvh.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga