Fréttir | 28. nóvember 2014 - kl. 16:04
Viltu ættleiða hestabarn?

Hestamannafélagið Þytur hefur leitað til félagsmanna sinni um hvort þeir séu tilbúnir að veita börnum aðgang að hesti í þeirra eigu. Hesturinn þarf að vera góður, þægur og traustur og tilbúinn í nýtt hlutverk, að ala upp unga knapa.

Á fundi hestamannafélagsins þann 19. nóvember síðastliðinn varð mikill umræða um hvernig auka mætti nýliðun í hestamennsku. Vandamálið sé hvorki nýtt né staðbundið og yrðu hestamenn að vera vakandi og opnir fyrir öllum hugmyndum.

Ein hugmyndin sem kom upp á fundinum var að félagsmenn myndu „ættleiða hestabarn“, það er að segja, eigandi hests myndi veita aðgang að hrossi og aðstöðu og aðstoða þau börn og unglinga sem áhuga hefðu eða vantaði tækifæri til að ríða út. Á fundinum kom strax fram að tveir félagsmenn líklega getað boðið upp á þetta.

Í kjölfarið hefur hestamannafélagið leitað til félagsmanna til að taka þátt í verkefninu.

Á vef Þyts kemur fram að hestamannafélagið mun aðeins vera tengiliður og milligönguaðili. Fyrirkomulagið mætti ræða í hverju tilviki fyrir sig, t.d. gætu 2-3 krakkar skipt með sér einum hesti.

Þeir hestamenn sem geta tekið þátt í framtakinu er bent á að hafa samband við Kollu á netfangið kolbrunindrida@gmail.com eða í síma 863-7786. Þá mega foreldrar barna, sem langar að stunda hestamennsku en hafa ekki aðgang að hesti, einnig hafa samband við Kollu eða einhvern í stjórn Þyts.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga