Fréttir | 16. desember 2014 - kl. 22:15
Fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps samþykkt

Fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir árið 2015 var samþykkt á fundi hreppsnefndar á mánudaginn. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar verði jákvæð um 10,5 milljónir króna. Áætlað er að tekjur A og B hluta verði um 400 milljónum króna og að rekstrargjöld verði um 387 milljónir. Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld er áætlaður um 13 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að skuldir samstæðunnar haldi áfram að lækka og að veltufé frá rekstri verði um 24 milljónir króna eða um 6%.

Samkvæmt áætluninni verða lagðir fjármunir til viðhalds og kaupa á búnaði í öllum deildum. Talsverðum fjármunum verður veitt til viðhalds. Stærsta einstaka framkvæmdaverkefni ársins 2015 eru endurbætur á Húnavallaskóla að fjárhæð 12,9 milljónir króna. Má þar helst nefna að reiknað er með að gera endurbætur á sundlaug  fyrir 7,7 milljónir króna og gluggaskipti fyrir 4,2 milljónir. Varlega er farið í breytingar á gjaldskrám og mun gjaldskrá leikskóla hækkuð óverulega á milli ára.

Í fundargerð hreppsnefndar Húnavatnshrepps frá því á mánudaginn kemur fram að áherslur við fjárhagsáætlunargerðina hafi verið unnar í góðri samvinnu meirihluta og minnihluta.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga