Fréttir | 22. desember 2014 - kl. 09:35
Jólapóstur Hvatar

Tekið verður á móti jólapósti á skrifstofu Hvatar í dag frá klukkan 16 til 19 og á morgun Þorláksmessu frá klukkan 16 til 22. Búið er að gera samning við jólasveina um útburð bréfa og böggla á aðfangadag en þeir munu síðan halda heim á leið fljótlega eftir það. Bréf kosta 70 krónur og bögglar 400 krónur.

Það er knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Hvatar sem hefur veg og vanda af jólapóstinum á Blönduósi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga