Fréttir | 22. desember 2014 - kl. 22:56
Nýr framkvæmdastjóri SSNV

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur ráðið Berg Elías Ágústsson í starf framkvæmdastjóra samtakanna. Auglýst var eftir framkvæmdastjóra og bárust 14 umsóknir og voru tekin viðtöl við þrjá umsækjendur. Í framhaldi af því var ákveðið að ráða Berg Elías í starfið.

Bergur Elías Ágústsson er 51 árs, fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur og er menntaður í hagfræði frá Sjávarútvegsháskólanum í Tromsö í Noregi. Bergur hefur síðustu átta ár starfað sem bæjarstjóri í Norðurþingi en var áður bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Auk starfa sem bæjarstjóri hefur hann gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum í atvinnulífi hér á landi, m.a. í sjávarútvegi, sem og fjölda annarra trúnaðarstarfa á vettvangi sveitarfélaga, segir í tilkynningu.

 

 

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga