Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:40 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:40 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:40 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:40 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:40 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:40 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Íþróttamaður ársins 2014 hjá Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga er Snjólaug María Jónsdóttir, skotíþróttakona og formaður Skotfélagsins Markviss, og er þetta annað ári í röð sem hún hlýtur þessa viðurkenningu. Tilkynnt var um valið í Samkaupum á Blönduósi í dag. Í október síðastliðnum var Snjólaug María kosin skotmaður Markviss árið 2014 en hún hlaut þá viðurkenningu einnig árið 2013.
Árangur hennar á nýliðnu tímabili var eftirfarandi.
-
Sigur í kv flokki á landsmóti STÍ, Rvk. 17. maí.
-
4. sæti i kv flokk á landsmóti STÍ, Þorlákshöfn 31. maí.
-
Sigur í kv flokk á landsmóti STÍ og jöfnum á Íslandsmeti, Blönduós 14. júní.
-
11. sæti í B úrslitum SIH-Open, Alþjóðlegt mót í Hafnarfirði 5.-6. júlí.
-
3. sæti í kv flokk á Íslandsmóti STÍ. Rvk 19. júlí.
-
Sigur í kv flokk Landsmót STÍ og jöfnun á Íslandmeti, Akureyri 26. júlí.
-
Sigur í kv flokk Landsmót STÍ og nýtt Íslandsmet, Húsavík 9. ágúst.
-
Sigur í kv flokk Bikarmót STÍ og jöfnun á Íslandsmeti, Akureyri, 6 september. Varð Bikarmeistari kvenna með fullt hús stiga annað árið í röð.
-
Sigur á Kvennamótinu SKYTTAN. Rvk 20. september.
-
Valin í úrtakshóp Skotíþróttasambands Íslands fyrir Smáþjóðaleikana 2015.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |