Fréttir | 26. desember 2014 - kl. 12:03
Jólahús ársins á Blönduósi valið
Jólaleikur Húnahornsins

Sú hefð hefur skapast á Húnahorninu í desember að velja Jólahús ársins á Blönduósi. Um er að ræða samkeppni um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahús. Samkeppnin um Jólahúsið 2014 verður með svipuðu sniði og síðust ár.

Til að taka þátt í samkeppninni er tilnefning send inn í gegnum rafrænan atkvæðaseðil sem staðsettur er á forsíðu Húnahornsins. Hverjum og einum er heimilt að senda inn eina tilnefningu. Það hús sem fær flestar tilnefningar verður valið Jólahús ársins 2014 á Blönduósi. Samkeppnin stendur til miðnættis 30. desember og verða úrslit gerð kunn á síðasta degi ársins.

Þetta er í þrettánda sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á Jólahúsi ársins á Blönduósi. Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:

2001: Brekkubyggð 17
2002: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2004: Hlíðarbraut 13
2005: Hlíðarbraut 8
2006: Sunnubraut 3
2007: Ekkert val
2008: Hlíðarbraut 8
2009: Hlíðarbraut 4
2010: Mýrarbraut 35
2011: Melabraut 19
2012: Mýrarbraut 33
2013: Heiðarbraut 1
2014: ?

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga