Fréttir | 27. desember 2014 - kl. 08:12
Opið hús hjá Nesi listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús í dag, laugardaginn 27. desember, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 milli klukkan 15 og 17. Á meðan á opnu húsi stendur mun Julie Pasila taka andlitsmyndir af fólki og Steffi og Paula munu elda súpu og spjalla við gesti frá klukkan 15:30 til 16:30. Súpan verður borin fram klukkan 16:30.

Þá verður hægt að hitta listamennina sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir. Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga