Fréttir | 28. desember 2014 - kl. 21:50
Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi 90 ára
Opið hús í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi

Í tilefni af 90 ára afmæli félagsins á árinu verður Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi með opið hús í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi, þriðjudaginn 30. desember kl. 16:00 – 18:00.

Boðið verður upp á kaffiveitingar fyrir gesti og margt til gamans gert, s.s. kynningar á starfsemi félagsins og frítt í sund fyrir félagsmenn á sama tíma. Allir eru velkomnir í íþróttahúsið.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga