Fréttir | 16. janúar 2015 - kl. 14:09
Potluck í Nesi listamiðstöð

Nes listamiðstöð býður þeim, sem áhuga hafa í „potluck“ á morgun, laugardaginn 17. janúar klukkan 18-20. Potluck eða Pálínuboð er skilgreint sem samkoma þar sem gestirnir koma með mat og leggja til á sameiginlegt hlaðborð. Í boðinu gefst gott tækifæri að hitta og spjalla við listamennina sem dvelja í Nesi listamiðstöð.

Dagsetning: Laugardagurinn 17. janúar 2015
Tímasetning: 18:00-20:00.
Staður: Fjörubraut 8 á Skagaströnd.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga