Frá vesturbakkanum
Frá vesturbakkanum
Fréttir | 16. janúar 2015 - kl. 15:43
Fleygar aligæsir á vesturbakkanum

Í Morgunblaðinu í gær var frétt frá Jóni Sigurðssyni, fréttaritara blaðsins á Blönduósi, um aligæsir sem verið hafa á vappi fyrir utan nýbyggt fuglaskoðunarhús á Blönduósi. Í fréttinni segir að ýmsar kenningar hafi komið fram um fugla þessa, ætt þeirra og uppruna. „Þóttu margir kenna þarna afkvæmi grágæsar og hinnar alhvítu pekingandar. Ýmsar aðrar kenningar hafa verið nefndar sem of langt mál væri að fara út í. Hvað sem líður upplýsingum um hina íslensku aligæs þá hefur komið í ljós að þessi ræktaði stofn hefur ræktað sig sjálfur frá hátíðarmatarborðum landsmanna og er orðinn fleygur og dvelur nú í öryggi skotvopna-banns á vesturbakka Blöndu,“ segir í frétt Morgunblaðsins.

Til fróðleiks er sagt frá því að aligæsir hafi verið til staðar í sögu landsins frá landnámstíð. Þær séu nú taldar í útrýmingarhættu og að þær séu ófleygar vegna þess að búið sé að breyta líkamsgerð fuglanna með ræktun.

Til enn frekari upplýsingar þá nefnir Jón að von sé á fyrstu grágæsum bæjarins frá Bretlandi í lok mars.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga