Selasetur Íslands á Hvammstanga
Selasetur Íslands á Hvammstanga
Fréttir | 20. janúar 2015 - kl. 07:45
Styrkur til rannsókna á fæðuvali landsela

Sandra Granquist, sameignlegur starfsmaður Selasetur Íslands á Hvammstanga og Veiðimálastofnunnar og deildarstjóri hjá Selasetri íslands, hlaut á dögunum styrk frá Kunglina Vetenskaps Akademien (the Royal Swedish Academy of Science) í Svíþjóð til áframhaldandi rannsókna á fæðuvali landsela.

Þetta kemur fram á vef Selasetursins. Þar segir að markmið verkefnis sem styrkt var sé að áætla mikilvægi laxfiska í fæðu landsela með því að nota stöðugar samsætur (stable isotopes). Sú rannsóknaraðferð hafi meðal annars nýst vel innan fornleifafræðinnar. Greining á stöðugum samsætum geti gefið vísbendingar um hvar í fæðukeðjunni landselurinn sé staðsettur miðað við aðrar sjávartegundir, ásamt því að gefa vísbendingar um hlutfall fæðu selanna sem koma úr ferskvatni og sjó.

 

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga