Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 21. janúar 2015 - kl. 09:56
“ásættanlegt að þjónusta í heimabyggð sé ekki nýtt þegar húsrými er til staðar

Í gær var haldinn, upplýsinga- og umræðufundur fyrir eldri borgara (60+) og aðstandendur þeirra í Húnaþingi vestra og fór hann fram í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á fundinum var skorað á þingmenn kjördæmisins og heilbrigðisráðherra að tryggja fjármagn til að manna þau ónýttu legurými sem til staðar eru á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga.

Í ályktun fundarins segir að nýting á sjúkrasviði hafi farið vaxandi einkum á undanförnum tveimur árum og hafi það gerst nokkrum sinnum að fólk úr héraði hafi ekki fengið rými á HVE á Hvammstanga vegna þess að starfsstöðin sé ekki nægilega mönnuð til að geta tekið við fleiri sjúklingum. Ekki hafi verið hægt vegna fjárskorts að manna sjúkrasvið nema vegna 17 legurýma þó gert sé ráð fyrir að 20 rými séu það sem til þurfi til að sinna núverandi þörfum.

Fundurinn telur óásættanlegt að þjónusta í heimabyggð sé ekki nýtt þegar húsrými er til staðar, en þess í stað dvelji sjúklingar á Akranesi, í Reykjavík eða á Akureyri í mun dýrari úrræðum. Að mati fundarins er ekki hægt að ganga lengra í sparnaði við stofnunina nema að skerða þjónustuna og þar með rýra búsetuskilyrði í sveitarfélaginu.         

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga