Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur stofnað Facebook síðu þar sem kynna á starf lögreglunnar og auka upplýsingaflæði til almennings, að því er fram kemur á vef Feykis. Um áramót tóku í gildi breytingar á lögum um umdæmaskipan lögreglustjóra og sýslumanna og voru lögregluliðin á Blönduósi og Sauðárkróki sameinuð í eitt lið, Lögregluna á Norðurlandi vestra.
Fyrsti lögreglustjóri hjá hinu nýstofnaða embætti, Páll Björnsson frá Löngumýri, hefur hafið störf en hann mun hafa aðsetur á lögreglustöðinni á Sauðárkróki, sem er aðalskrifstofa embættisins. Tveir yfirlögregluþjónar eru hjá embættinu, Sauðkrækingurinn Stefán Vagn Stefánsson, sem er yfirmaður rannsókna og Blönduósingurinn Kristján Þorbjörnsson, sem er yfirmaður almennrar deildar. Saksóknarfulltrúi embættisins og staðgengill lögreglustjóra er Björn Ingi Óskarsson. Þá hefur lögreglukonan Erna Rut Kristjánsdóttir hafið störf sem skrifstofustjóri og er almennur skrifstofutími frá kl: 9-15 alla virka daga á lögreglustöðinni á Sauðárkróki.
Lögreglustöðvarnar verða áfram tvær, sem fyrr staðsettar á Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi og Suðurgötu 1 á Sauðárkróki. Þá verður tekið í gagnið nýtt skýrslugerðarherbergi á lögreglustöðinni á Sauðárkróki og standa nú framkvæmdir yfir vegna þessa.
„Við sjáum fram á marga og spennandi möguleika við stækkun lögregluliðsins sem geta styrkt innviði lögreglunnar á svæðinu. Það er okkar markmið, að auka þjónustuna og samstarfið við almenning og að halda áfram að efla öryggisstigið á Norðurlandi vestra,“ sagði Björn Ingi saksóknarfulltrúi og staðgengill lögreglustjóra í samtali við Feyki.
Heimild: Feykir.is
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |