Mynd: Feykir.is/GHK
Mynd: Feykir.is/GHK
Fréttir | 24. janúar 2015 - kl. 13:55
Vatnsrennibraut reist á Hvammstanga

Framkvæmdum við vatnsrennibraut við sundlaugina á Hvammstanga miðar vel að því er segir á Feyki.is. Að sögn Guðnýjar Hrund Karlsdóttur sveitarstjóra Húnaþings vestra er búið að reisa rennibrautina en eftir er að ganga frá tengingum vatns- og raflagna.

Framkvæmdir hófust um miðjan desembermánuð en þar sem tíðarfarið hefur verið óhagstætt er ekki gert ráð fyrir að jarðvegsfrágangi ljúki fyrr en með vorinu. Að sögn Guðnýjar verður brautin tekin í notkun um leið og jarðvegsframkvæmdum lýkur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga