Fréttir | 25. janúar 2015 - kl. 20:56
Hundruð manna föst í Staðarskála

Fjöldi fólks hefur verið strandaglópar í Staðarskála í Hrútafirði frá því á fjórða tímanum í dag vegna veðurs og komist hvorki lönd né strönd, að því er fram kemur á Mbl.is. Sigríður Sif, vaktstjóri í Staðarskála, segir að um sé að ræða 300-400 manns og hvert sæti sé skipað í skálanum og ennfremur setið á gólfinu.

Sigríður Sif segir í samtali við Mbl.is að stemningin sé róleg og fólk reyni að gera gott úr stöðunni. „Fólk er bara að fá sér að borða og spjalla. Hér er setið á gólfum og borðum og hvar sem hægt er. Fólki situr bara alls staðar“. Sigríður segir aðspurð að veðrið á svæðinu sé slæmt, hríðarbylur og ekkert skyggni.

Tugir bíla hafa setið fastir á Holtavörðuheiði í dag og eru björgunarsveitarmenn að vinna í því að koma  þeim niður af heiðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga