Erla
Erla
Fréttir | 25. janúar 2015 - kl. 22:16
Brynhildur Erla er maður ársins 2014 í Austur-Húnavatnssýslu

Lesendur Húnahornsins hafa valið Brynhildi Erlu Jakobsdóttur, íþróttafræðing og íþróttakennara við Blönduskóla, sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2014 fyrir að stuðla að bættri heilsu Austur-Húnvetninga. Tilkynnt var um valið á þorrablóti Vökukvenna sem haldið var í Félagsheimilinu á Blönduósi í gærkvöldi. Brynhildur Erla, eða Erla eins og hún er oftast kölluð, tók þar við viðurkenningarskildi frá fulltrúa Húnahornsins þessu til staðfestingar. Góð þátttaka var í valinu.

Erla hefur á síðasta ári komið mörgum Húnvetningnum til betri heilsu, á einstaklega góðan og nærgætinn hátti með sínum vinsælu Metabolic námskeiðum. Hún hefur haft mikil áhrif á að Húnvetningar séu meðvitaðri um mikilvægi hreyfingar og heilbrigðs lífernis.

Erla er 35 ára Blönduósingur. Hún útskrifaðist sem íþróttafræðingur árið 2005 og sem ÍAK einkaþjálfari árið 2013. Erla starfar sem íþróttakennari við Blönduskóla auk þess að sinna hóptímaþjálfun og íþróttaskóla fyrir börn.

Þetta er í tíunda sinn sem lesendur Húnahornsins velja manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu.

Menn ársins síðustu ár eru þessir:

2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal.
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.

Húnahornið óskar Erlu innilega til hamingju með útnefninguna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga