Fréttir | 26. janúar 2015 - kl. 09:13
Fjöldahjálpastöð komið upp í Reykjaskóla

Alls gistu um 230 manns í Reykjaskóla í Hrútafirði í nótt. Þar var komið upp fjöldahjálparstöð því Holtavörðuheiði var lokuð. Búið er að opna Holtavörðuheiði og næturgestirnir í Reykjaskóla fara að tínast burtu, segir Karl B. Örvarsson framkvæmdastjóri skólabúðanna sem þar eru reknar á vef Ríkisútvarpsins.

Í frétt Ríkisútvarpsins segir að von sé á 100 grunnskólanemendum þangað til nokkurra daga dvalar rétt fyrir hádegi. Meðal þeirra sem hefðu í nótt séu háskólanemar úr Háskólanum í Reykjavík, skíðahópar og körfuboltalið.

Karl og hans fólk svaf í um tvær klukkustundir í nótt. „Það var að koma í alla nótt og svo þurftum við bara líka að vaka svolítið yfir þessu. Svo fer þetta á tínast um eða upp úr níu því að við erum að fá tæplega 100 börn í skólabúðirnar milli 11 og 12,“ segir Karl í samtali við Ríkisútvarpið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga