Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:40 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:40 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:40 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:40 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:40 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:40 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kaflaskil verða í íslenskri fjarskiptasögu 2. febrúar næstkomandi. Þá lýkur síðasta áfanga í uppbyggingu á stafrænu dreifikerfi Vodafone og RÚV og slökkt verður á hliðræna dreifikerfinu sem þjónað hefur landsmönnum allt frá upphafi sjónvarpsútsendinga árið 1966. Útsendingin verður þá alfarið á stafrænu dreifikerfi sem þýðir stórbætta þjónustu um allt land, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.
Í hennir kemur fram að stefnt hafi verið að þessum áfanga allt frá því að RÚV og Vodafone gerðu með sér samning um uppbyggingu á stafrænu dreifikerfi 1. apríl 2013. Hann sé sá sjötti og síðasti í uppbyggingu nýja kerfisins – og langsamlega sá stærsti. Þar með hætta hliðrænar útsendingar RÚV á höfuðborgarsvæðinu (bæði um VHF/UHF og á örbylgjudreifikerfinu) auk þess sem líka verður slökkt á hliðræna dreifikerfinu í Húnavatnssýslum, hluta Skagafjarðar, á Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum.
Jafnframt þessu er tekin í notkun ný útsendingartækni sem hentar til háskerpuútsendinga. Allir sendar hafa verið settir upp og háskerpuútsendingar eru hafnar á flestum svæðum. Um þessar mundir er unnið að því að opna á háskerpuútsendingar á þeim sendum sem eftir eru.
Nýja kerfið nær til yfir 99,9% allra heimila á landinu og með því stórbatna myndgæði í útsendingu. RÚV getur nú loks sent út til þjóðarinnar allrar á tveimur sjónvarpsrásum, RÚV og RÚV2, en önnur þeirra verður í HD, eða háskerpu. Fleiri einkastöðvar verða sendar út um stafræna kerfið og geta því þúsundir heimila í hinum dreifðu byggðum nú í fyrsta sinn séð fleiri sjónvarpsstöðvar en RÚV. Að auki er fjöldi útvarpsstöðva sendur út með nýja kerfinu til viðbótar við útvarpsrásir RÚV, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |