Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:23 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:23 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:23 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:23 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:23 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:23 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Markaðsstofa Norðurlands, í samvinnu við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boðar til funda um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu. Fundir verða haldnir á Akureyri, Húsavík og Hvammstanga. Á fundinum verður rætt um framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu og kallað eftir ábendingum þátttakenda.
Fundirnir verða haldnir á Hótel KEA á Akureyri þriðjudaginn 10. mars klukkan 13:00-14:30 fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu og opinn íbúafundur kl. 15:00 – 16:30. Á Húsavík verður fundurinn á veitingahúsinu Sölku fimmtudaginn 12. mars kl 10-11:30. Fundur verður einnig á Hvammstanga en verður hann auglýstur síðar.
Í tilkynningu segir að markmiðið sé að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu. Mikilvægt sé að haghafar í ferðaþjónustu hafi aðkomu að verkefninu og geti komið á framfæri ábendingum og leiðum til að efla ferðaþjónustuna og gera hana alþjóðlega samkeppnishæfa.
Verkefnahópi ráðuneytisins og Samtaka ferðaþjónustunnar er ætlað gera tillögu að stefnu og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í byrjun júní í sumar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |