Fréttir | 02. mars 2015 - kl. 20:25
Náms- og akstursstyrkir í boði á Skagaströnd

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þúsund krónum skólaárið 2014-2015 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð. Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk.

Á vef Skagastrandar segir að umsóknum um styrki skuli skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 31. mars næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verði ekki teknar til greina.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni  http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.

Akstursstyrkur vegna dreifnáms
Jafnframt er auglýstur á vef Skagastrandar frestur til 1. maí 2015  til að sækja um sérstakan stuðning vegna dreifnáms fyrir vorönn 2015. Sveitarstjórn samþykkti  reglur um stuðning vegna dreifnáms veturinn 2014-2015 á fundi 12. september 2014 og vísast til þeirra á vef sveitarfélagsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga