Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 18. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:08 0 0°C
Laxárdalsh. 03:08 0 0°C
Vatnsskarð 03:08 0 0°C
Þverárfjall 03:08 0 0°C
Kjalarnes 03:08 0 0°C
Hafnarfjall 03:08 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 05. mars 2015 - kl. 13:58
Nes listamiðstöð tilnefnd til Eyrarrósarinnar

Nes listamiðstöðin á Skagaströnd er ein af tíu verkefnum sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár en fjöldi umsókna barst hvaðanæva af landinu. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunnar. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík.

Eyrarrósarlistinn 2015 birtir nöfn þeirra tíu verkefna sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Verkefnin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg og koma alls staðar að af landinu. Þann 18. mars næstkomandi verður tilkynnt hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Eyrarrósarlistinn 2015

* Braggast á Sólstöðum                                * Nes Listamiðstöð

* Ferskir vindar                                              * Orgelsmiðjan á Stokkseyri

* Frystiklefinn                                                 * Sköpunarmiðstöð á Stöðvarfirði

* Listasafn Árnesinga                                    * Verksmiðjan á Hjalteyri

* Listasafnið á Akureyri                                * Þjóðlagasetrið á Siglufirði

Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn laugardaginn 4.apríl næstkomandi á Ísafirði. Að venju mun Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhenda verðlaunin.

Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð var stofnuð árið 2008. Fjölmargir listamenn hafa dvalið á Skagaströnd frá opnun listamiðstöðvarinnar og margir hverjir hafa tekið þátt í ýmsum verkefnum m.a. í leik- og grunnskólum. Mánaðarlegir viðburðir eru í listamiðstöðinni með þátttöku heimamanna. Listamiðstöðin Nes hefur haft jákvæð áhrif á nærsamfélagið og gefið íbúum á öllum aldri og gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri listsköpun.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið