Fréttir | 29. mars 2015 - kl. 12:34
Ámundakinn sækir um lóð á Sauðárkróki

Ámundakinn ehf. á Blönduósi hefur sótt um lóð fyrir nýbyggingu á svokölluðum Freyjugötureit á Sauðárkróki. Áform félagsins eru að byggja þar um eitt þúsund fermetra skrifstofuhús á einni hæð. Umsókn félagsins var tekin fyrir á fundi skipulags- og bygginganefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á dögunum og var samþykkt a óska eftir fundi með forsvarsmönnum Ámundakinnar.

Starfsemi Ámundakinnar ehf. er aðallega tvíþætt, annarsvegar eignarhald og rekstur húsnæðis (leiga) og hinsvegar eignaraðild og þátttaka í rekstri fyrirtækja.

 

 

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga