Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 31. mars 2015 - kl. 15:01
Sumarstörf hjá Blönduósbæ auglýst

Blönduósbær auglýsir á vef sveitarfélagsins eftir flokksstjórum og sumarstarfsmönnum til starfa í Þjónustumiðstöð Blönduósbæjar og vinnuskóla frá 15. maí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi. Í auglýsingunni kemur fram að æskilegt sé að umsækjendur um störf flokkstjóra séu 20 ára eða eldri.

Þá vantar starfsfólk til sumarstarfa, 17 ára eða eldri. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Blönduósbæjar undir „eyðublöð“ og á bæjarskrifstofu, Hnjúkabyggð 33. Umsóknarfrestur er til 22. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar á skrifstofu Blönduósbæjar í síma 455 4700. Umsóknir má senda á netfangið agust@blonduos.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga