Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Þriðjudaginn 21. apríl standa Ferðamálasamtök Norðurlands vestra fyrir námskeiði um fuglaskoðun í ferðaþjónustu fyrir ferðaþjónustuaðila og áhugafólk um fuglaskoðun. Námskeiðið verður haldið á Hótel Blönduósi. Kjartan Bollason lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum mun leiða námskeiðið. Námskeiðið er sett upp sem hluti af þróun Fuglastígs á Norðurlandi vestra en í sumar mun koma út fyrsta fuglaskoðunarkortið fyrir svæðið á vegum samtakanna.
Nánar um námskeiðið:
Áhugavert námskeið um fuglaskoðun í ferðaþjónustu
Á námskeiðinu verður fjallað um vöruþróun á náttúrutengdri ferðaþjónustu með áherslu á góða umgengni gagnvart náttúru og samfélagi og fjárhagslegan hagnað fyrirtækis eða samfélags. Farið verður í eftirfarandi efnisþætti og þeir ræddir í samhengi við þróun fuglaskoðunarstígs á Norðurlandi vestra.
-
Hvað einkennir ferðamenn sem koma til fuglaskoðunar?
-
Hvaða innviðir eru nauðsynlegir til að taka á móti slíkum ferðamanni?
-
Hvaða þjónustu vilja/þurfa þeir sem sækjast eftir því að skoða fugla?
-
Hvaða þekkingu þarf ég/ferðaþjónustuaðili að búa yfir?
-
Hvaða skyldur hef ég sem býð upp á fuglaskoðunarstíg/-stað gagnvart bæði náttúru og samfélagi?
-
Náttúrutúlkun og leiðsögn - leiðir til að tengja ferðamanninn við náttúruna
-
Gerð ferðavörunnar – hvað þarf til að ná á ferðamanninn?
-
Samvinna fyrirtækja – mikilvægi þess að efla sitt tengslanet til að styrkja sitt fyrirtæki.
Kennari á námskeiði: Kjartan Bollason, lektor við Ferðamáladeild Hólaskóla, umhverfisfræðingur og menntaður leiðsögumaður.
Námskeiðið fer fram á Hótel Blönduósi, þriðjudaginn 21. apríl klukkan 10.00 til 16.00. Léttur hádegisverður og kaffi innifalið. Verð 5.000 krónur.
Skráning á netfangið selasetur@selasetur.is eða í síma 451 2345. Skráning þarf að hafa borist í síðasta lagi klukkan 12 mánudaginn 20. apríl næstkomandi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |