Fuglaskoðun á Blönduósi. Mynd Róbert D. Jónsson
Fuglaskoðun á Blönduósi. Mynd Róbert D. Jónsson
Fréttir | 14. apríl 2015 - kl. 12:50
Námskeið um fuglaskoðun í ferðaþjónustu

Þriðjudaginn 21. apríl standa Ferðamálasamtök Norðurlands vestra fyrir námskeiði um fuglaskoðun í ferðaþjónustu fyrir ferðaþjónustuaðila og áhugafólk um fuglaskoðun. Námskeiðið verður haldið á Hótel Blönduósi. Kjartan Bollason lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum mun leiða námskeiðið. Námskeiðið er sett upp sem hluti af þróun Fuglastígs á Norðurlandi vestra en í sumar mun koma út fyrsta fuglaskoðunarkortið fyrir svæðið á vegum samtakanna.

Nánar um námskeiðið:

Áhugavert námskeið um fuglaskoðun í ferðaþjónustu

Á námskeiðinu verður fjallað um vöruþróun á náttúrutengdri ferðaþjónustu með áherslu á góða umgengni gagnvart náttúru og samfélagi og fjárhagslegan hagnað fyrirtækis eða samfélags. Farið verður í eftirfarandi efnisþætti og þeir ræddir í samhengi við þróun fuglaskoðunarstígs á Norðurlandi vestra.

  1. Hvað einkennir ferðamenn sem koma til fuglaskoðunar?

  2. Hvaða innviðir eru nauðsynlegir til að taka á móti slíkum ferðamanni?

  3. Hvaða þjónustu vilja/þurfa þeir sem sækjast eftir því að skoða fugla?

  4. Hvaða þekkingu þarf ég/ferðaþjónustuaðili að búa yfir?

  5. Hvaða skyldur hef ég sem býð upp á fuglaskoðunarstíg/-stað gagnvart bæði náttúru og samfélagi?

  6. Náttúrutúlkun og leiðsögn - leiðir til að tengja ferðamanninn við náttúruna

  7. Gerð ferðavörunnar – hvað þarf til að ná á ferðamanninn?

  8. Samvinna fyrirtækja – mikilvægi þess að efla sitt tengslanet til að styrkja sitt fyrirtæki.

Kennari á námskeiði: Kjartan Bollason, lektor við Ferðamáladeild Hólaskóla, umhverfisfræðingur og menntaður leiðsögumaður.

Námskeiðið fer fram á Hótel Blönduósi, þriðjudaginn 21. apríl klukkan 10.00 til 16.00. Léttur hádegisverður og kaffi innifalið. Verð 5.000 krónur.

Skráning á netfangið selasetur@selasetur.is eða í síma 451 2345. Skráning þarf að hafa borist í síðasta lagi klukkan 12 mánudaginn 20. apríl næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga