Fréttir | 16. apríl 2015 - kl. 14:37
Dragspilsdansleikur í Ósbæ

Harmonikkuunnendur í Húnavatnssýslu standa fyrir dragspilsdansleik í Ósbæ, að Þverbraut 1 á Blönduósi, laugardaginn 18. apríl næstkomandi frá klukkan 21:00-01:00. Harmonikkuunnendur við Eyjafjörð ætla að fjölmenna og þenja nikkur sínar fyrir dansi. Nú er kjörið tækifæri að lyfta andanum og taka nokkur létt spor. Aðgangseyrir er 2.000 krónur en engin posi er á staðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga