Mynd: Lambakjöt.is
Mynd: Lambakjöt.is
Fréttir | 20. apríl 2015 - kl. 22:03
Kótelettukvöld í Eyvindastofu

Hið Frjálsa kótelettufélaginu í Austur-Húnavatnssýslu heldur sitt fjórða og síðasta kótelettukvöld vetrarins næstkomandi laugardagskvöld, 25. apríl klukkan 19:30. Á boðstólum verða kótelettur í raspi eins og þær gerast bestar frá SAH Afurðum og Pottinum, bornar fram með rabarbarasultu, grænum baunum, rauðkáli, laukfeiti og brúnuðum kartöflum, allt eins og var hjá ömmu.

Þar sem líta má á viðburð þennan sem uppskeruhátíð félagsins þá hafa forsvarsmenn þess fengið Magnús Sigurðsson frá Hnjúki til að vera veislustjóra, en söngur og vísur úr sal komu sterkt inn á síðasta kvöldi.

Eftir þetta kvöld mun Frjálsa kótelettufélagið í Austur-Húnavatnssýslu taka sér sumarfrí en vonar að veitingastaðir í Austur-Húnavatnssýslu muni bjóða upp á þennan þjóðarrétt í sumar.

Valli á Hlíðarbraut 1 á Blönduósi mun glaður taka á móti pöntunum, bæði á Facebook og í síma 893-4331.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga