Fréttir | 24. apríl 2015 - kl. 10:30
Blönduósingur ráðinn fjármálastjóri N1

Blönduósingurinn Pétur Hafsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1 og mun hann taka sæti í framkvæmdastjórn félagins, að því er fram kemur í tilkynningu frá N1. Pétur er sonur hjónanna Hafsteins Péturssonar og Sigríðar Hrannar Bjarkadóttur.

Pétur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur (Cand. Oecon) frá Háskóla Íslands árið 2004 og M.Acc. frá sama skóla árið 2006. Pétur hefur starfað hjá N1 frá árinu 2007 og verið deildarstjóri hagdeildar frá 2011. Pétur starfaði á endurskoðunarsviði KPMG árin 2004-2007.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga