Fréttir | 28. apríl 2015 - kl. 15:19
Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra

Sveitarstjórn Húnaþings vestra auglýsir á vef sveitarfélagsins eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.

Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra. Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Í auglýsingunni er athygli vakin á því að minniháttar breytingar hafi verið gerðar á úthlutunarreglunum frá fyrra ári.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu gudny@hunathing.is. Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á að úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og fleiri gögn er varða Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra er að finna hér.

Umsóknir skulu berast til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 15. maí næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga