Tilkynningar | 19. maí 2015 - kl. 21:18
Héraðsmót USAH í sundi verður þann 4. júní
Tilkynning frá USAH

Héraðsmót USAH í sundi verður haldið fimmtudaginn 4. júní. Mótið hefst kl. 17, upphitun hefst kl. 16:30. Þátttökurétt hafa félagsmenn í aðildarfélögum USAH. Keppt verður í sundlauginni á Blönduósi. Handtímatökuklukkur eru notaðar. 

Í tilefni af landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður á Blönduósi vill sunddeildin sérstaklega hvetja sundgarpa 50 ára og eldri til að taka þátt í héraðsmótinu og æfa sig fyrir komandi keppni á landsmóti.  

Skráningargjöld eru 300 kr. fyrir grein. Vinsamlegast sendið inn skráningar eigi síðar en fimmtudaginn 28. maí. Nauðsynlegt er að staðfesta skráningar með því að leggja skráningargjöld inn á reikning sunddeildar Hvatar; 0307-26-711. Kt. 470711-0860 fyrir mót. Senda á skráningar á netfangið hvotsund@hotmail.com þar sem fram kemur nafn keppanda, kennitala og greinar sem viðkomandi ætlar að keppa í. 

Nánari upplýsingar veitir Berglind Björnsdóttir í síma 8636037 eða Erna Björg í síma 8997849. Ef einhver hefur áhuga á að aðstoða við mótið væri það mjög vel þegið. Hinir áhugasömu hafi samband við Berglindi eða Ernu Björgu eða sendi deildinni tölvupóst.  

Keppnisgreinar á mótinu eru: 

Hnokkar og hnátur - 10 ára og yngri * börn fædd 2009 og yngri mega nota kút. 

50 (eða 25) bringusund – 50 (eða 25) skriðsund - 25 baksund - 25 flugsund 

-mælum með því að þau allra yngstu skrái sig í skriðsund

Sveinar og meyjar - 11-12 ára  

50 bringusund - 50 skriðsund - 50 baksund - 25 flugsund - 100 fjórsund 

Drengir og telpur - 13-14 ára  

50 bringusund - 50 skriðsund - 50 baksund - 25 flugsund - 100 fjórsund 

Piltar og stúlkur - 15-16 ára  

100 bringusund - 100 skriðsund - 50 baksund - 50 flugsund - 100 fjórsund 

Karlar og konur - 17 ára og eldri  

100 bringusund - 100 skriðsund - 50 baksund - 50 flugsund - 100 fjórsund 

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum greinum nema hnokka- og hnátuflokki. Í hnokka- og hnátuflokki fá allir þátttakendur þátttökuverðlaun. 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga