Fréttir | 20. maí 2015 - kl. 09:26
Samningurinn í hættu vegna verkfalls

Fjögur hundruð milljóna króna samningur SAH Afurða á Blönduósi, um sölu á 160 tonnum af lambakjöti og 70 þúsund gærum til fyrirtækis í Hong Kong, er í hættu dragist verkfall dýralækna á langinn en fyrstu gámarnir eiga að fara úr landi eftir viku. Gunnar Tr. Halldórsson, framkvæmdastjóri SAH Afurða óttast að samningnum verði rift ef tafir á afhendingu verði miklar.

Sagt var frá þessi í fréttum í Ríkisútvarpinu í gær. Fram kom í fréttinni að gámar með gærunum séu bókaðir í skip 26. maí næstkomandi og að sú sending þurfi vottun dýralækna Matvælastofnunar. Sendingin fer ekki af stað ef þeir veri ennþá í verkfalli. Gunnar segir í samtali við Ríkisútvarpið það alltaf hættulegt að geta ekki staðið við fyrstu sendingu í nýjum viðskiptum. Það geti haft mikil áhrif á áframhaldandi viðskipti. Í samningnum séu ákvæði um að félagið verði að greiða kaupandanum sektir dragist afhending meira en viku fram yfir umsamdar dagsetningar. „Það má eiginlega segja að það verði strax fjárhagslegt tjón ef ekki næst að fá gáma vottaða í næstu viku."

Og dragist verkfallið á langinn þannig að miklar tafir verði á afhendingu, gæti fyrirtækið í Hong Kong hreinlega rift samningnum. „Við erum litlir viðskiptavinir í þessum stóra heimi og þeir kannski nenna ekkert að eiga við okkur ef við getum ekki staðið við gerða samninga," segir Gunnar í samtali við Ríkisútvarpið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga