Fréttir | 27. maí 2015 - kl. 10:27
Héraðsmót USAH í sundi

Héraðsmót Ungmennasambands Austur-Húnvetninga í sundi verður haldið fimmtudaginn 4. júní næstkomandi. Mótið hefst klukkan 17 en upphitun hefst hálftíma fyrr. Þátttökurétt hafa félagsmenn í aðildarfélögum USAH. Keppt verður í sundlauginni á Blönduósi. Handtímatökuklukkur verða notaðar. Í tilefni af landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður á Blönduósi vill sunddeildin sérstaklega hvetja sundgarpa 50 ára og eldri til að taka þátt í héraðsmótinu og æfa sig fyrir komandi keppni á landsmóti.

Skráningargjöld eru 300 krónur fyrir grein og eru þátttakendur vinsamlegast beðnir um að sendið inn skráningar eigi síðar en fimmtudaginn 28. maí næstkomandi. Nauðsynlegt er að staðfesta skráningar með því að leggja skráningargjöld inn á reikning sunddeildar Hvatar; 0307-26-711. Kt. 470711-0860 fyrir mót. Senda á skráningar á netfangið hvotsund@hotmail.com þar sem fram kemur nafn keppanda, kennitala og greinar sem viðkomandi ætlar að keppa í.

Nánari upplýsingar veitir Berglind Björnsdóttir í síma 8636037 eða Erna Björg í síma 8997849. Ef einhver hefur áhuga á að aðstoða við mótið væri það mjög vel þegið. Hinir áhugasömu hafi samband við Berglindi eða Ernu Björgu eða sendi deildinni tölvupóst. 

Keppnisgreinar á mótinu eru:

hnokkar og hnátur - 10 ára og yngri * börn fædd 2009 og yngri mega nota kút.
50 (eða 25) bringusund – 50 (eða 25) skriðsund - 25 baksund - 25 flugsund  -mælum með því að þau allra yngstu skrái sig í skriðsund

sveinar og meyjar - 11-12 ára 
50 bringusund - 50 skriðsund - 50 baksund - 25 flugsund - 100 fjórsund

drengir og telpur - 13-14 ára
50 bringusund - 50 skriðsund - 50 baksund - 25 flugsund - 100 fjórsund

piltar og stúlkur - 15-16 ára 
100 bringusund - 100 skriðsund - 50 baksund - 50 flugsund - 100 fjórsund

karlar og konur - 17 ára og eldri 
100 bringusund - 100 skriðsund - 50 baksund - 50 flugsund - 100 fjórsund

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum greinum nema hnokka- og hnátuflokki. Í hnokka- og hnátuflokki fá allir þátttakendur þátttökuverðlaun.

www.usah.is

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga