Mynd: Textile.is
Mynd: Textile.is
Fréttir | 27. maí 2015 - kl. 12:03
Vel heppnaðir stofutónleikar

Einstaklega skemmtilegir tónleikar fóru fram í Heimilisiðnaðarsafninu á íslenska Safnadaginn. Þar fóru þau Herdís Anna Jónsdóttir og Steef van Oosterhout á kostum í tónlistarflutningi sínum en þau skipa Dúó Stemmu. Efnisskrá þeirra samanstóð fyrst og fremst af íslenskum þjóðlögum, þulum og vísum sem tók á sig ýmsar myndir þar sem þau hjón ljáðu líka rödd sína í tali og tónum.

Á vef Heimilisiðnaðarsafnsins segir að það hafi verið ótrúlegt að fylgjast með hvernig þau Herdís Anna og Steef spiluðu ekki aðeins á hefðbundin hljóðfæri s.s. víólu og marimbu (sú stærsta hérlendis) heldur einnig á steinaspil Páls frá Húsafelli, svo og allskyns heimatilbúin hljóðfæri s.s. skyrdollur, vélsagarblöð, berjatínu, teskeiðar, og margt fleira. Þau hafi framkallað ótrúlega falleg hljóð sem rímuðu inn í flutninginn á heildrænan og skemmtilegan hátt.

Þá kemur fram að vef safnsins að áheyrendur hafi verið í skýjunum eftir þennan einstaka atburð þar sem þeir upplifðu frábæra stemmningu í tali, tónum og hljóðum.

Eftir tónleikana þáðu gestir kaffi og formkökur að íslenskum sið og áttu saman notalega stund.

Meðfylgjandi mynd er fengin af vef Heimilisiðnaðarsafnsins en þar má finna fleiri myndir frá tónleikunum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga