Fréttir | 31. maí 2015 - kl. 06:49
Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins opnar í dag klukkan 15:00. Um er að ræða sýningu Guðrúnar Auðunsdóttur, myndlistakonu, sem nefnist „Fínerí úr fórum formæðra“. Sýningin er tileinkuð því að 100 ár eru frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt. Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari, mun strjúka strengi fiðlu sinnar listakonunni til heiðurs.

Eftir opnunina verður að vanda boðið upp á kaffi og kleinur. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.

Sýningin verður opin á opnunartíma safnsins í allt sumar eða frá 1. júní til 31. ágúst frá klukkan 10 til 17 alla daga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga