Fréttir | 27. maí 2015 - kl. 14:20
Verkfalli SGS frestað um sex daga

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur gengið frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að fresta fyrirhuguðum verkföllum um sex daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SGS og birt er á vef Samstöðu. Boðuðu verkfalli dagana 28. og 29. maí og 3. og 4. júní er því frestað. Ótímabundið verkfall sem hefjast átti 6. júní er frestað til 12. júní.  

„Ljóst er að viðræður eru hafnar af fullum þunga og það er mat samninganefndarinnar að gefinn skuli tími til að reyna til þrautar um að samningar náist. Kröfugerð Starfsgreinasambandsins er sem fyrr grundvöllur áframhaldandi viðræðna,“ segir í tilkynningu frá sambandinu.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga