Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 28. maí 2015 - kl. 10:29
Þrifahönd á Skagaströnd

Á vef Skagastrandar er skorað á íbúa sveitarfélagsins að taka sig til, laugardaginn 30. maí næstkomandi, og hreinsa bæði hjá sér og í sínu nánasta  umhverfi. „Nú vorar sem óðast og senn líður að sjómannadegi. Það er því kominn tími til að taka til hendinni og þrífa eftir veturinn,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjóra.

Endurvinnslustöðin verður opin klukkan 13 til 17 og ekkert gjald tekið fyrir þann úrgang sem berst þennan dag.

Fulltrúar í sveitarstjórn munu taka á móti þeim sem koma á endurvinnslustöðina frá klukkan 15 til 17 og bjóða upp á grillaðar pylsur eða annað góðgæti.

Þeir sem ekki hafa búnað til flutninga geta óskað eftir kerruþjónustu hjá áhaldahúsi í síma 774 5427.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga