Kvennaskólinn á Blönduósi
Kvennaskólinn á Blönduósi
Fréttir | 29. maí 2015 - kl. 08:23
Aðalfundur Vina Kvennaskólans

Aðalfundur Vina Kvennaskólans á Blönduósi verður haldinn fimmtudaginn 4. júní næstkomandi og hefst hann klukkan 20 í Kvennaskólanum. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kaffiveitingar og gott meðlæti. Gestur fundarins verður Kristín Sigfúsdóttir, menntaskólakennari, sem mun spjalla um húsmæðrafræðsluna áður fyrr og fleira.

Félagsmenn Vina Kvennaskólans eru nú 237 talsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga