Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 01. júní 2015 - kl. 14:40
Íbúafundur á Skagaströnd um umhverfismál

Íbúafundur um umhverfismál verður haldinn í dag klukkan 17:30 í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd. Efni fundarins er umhverfismál bæði almennt og með tilliti til Skagastrandar sérstaklega. Rætt verður m.a. um plastmengun í hafi, flokkun og endurvinnslu úrgangs, og um umhverfis- og úrgangsmál á Skagaströnd.

Kynningar- og umræðuefni á fundinum:
Plastmengun í hafi, James Kennedy, sérfræðingur hjá BioPol/Hafró.

Flokkun og endurvinnsla úrgangs, Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar ehf.

Umhverfis- og úrgangsmál á Skagaströnd, Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga