Helga Guðrún Guðjónsdóttir. Ljósmynd: Umfi.is
Helga Guðrún Guðjónsdóttir. Ljósmynd: Umfi.is
Fréttir | 28. júní 2015 - kl. 23:01
Allir svo glaðir og þakklátir

Landsmóti UMFÍ 50+ lauk á Blönduósi nú síðdegis. Mótið tókst með afbrigðum vel og lék veðrið við keppendur og mótsgesti allan tíman. Á vef UMFÍ segir Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands að þátttakan hafi verið góð, dagskráin vel skipulögð og keppnin öll gengi eins og í sögu. „Þetta verkefni er rosalega skemmtilegt og það sem stendur upp úr er öll þessi gleði, allir þakklátir og það er þetta sem gefur þessu svo mikið gildi. Við finnum það að mótið er að styrkjast með hverju árinu en við bíðum ennþá eftir vissum aldursflokki inn á mótið, 50-65 ára, við finnum vonandi leið til að fá þennan hóp til að vera með,“ segir Helga Guðrún.

Helga Guðrún segir landsmótin vera stór verkefni innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Næsta verkefni væri unglingalandsmótið á Akureyri sem er mjög stórt mót. Landsmót 50+ er á hverju ári, stóra landsmótið síðan á fjögurra ára fresti og því eru öll þessi mót klárlega eitt af stærri verkefnunum.

„Það er ástæða til að hlakka til næsta Landsmóts UMFÍ 50+ og ég hvet alla til að skella sér á mótið á Ísafirði á næsta ári. Það er einhvern veginn sama hvar við höldum þessi mót því þau fá öll sinn sérstaka brag. Ég held að á Ísafirði eigi fólk eftir að kynnast einhverju sem það hefur aldrei kynnst áður. Ég er full tilhlökkunar og þessi mót eiga bjarta framtíð fyrir sér,“ segir Helga Guðrún á vef UMFÍ.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga