Jörundarfell
Jörundarfell
Fréttir | 30. júní 2015 - kl. 10:25
Hugmyndir um atvinnuuppbyggingu ræddar

Í gær komu íbúar Austur-Húnavatnssýslu saman á fundi í Félagsheimilinu Blönduósi og ræddu atvinnumál í sýslunni og nýlega greinargerði um atvinnuuppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu sem unnin var af verkefnastjórn sem í sátu fulltrúar frá sveitarfélögunum á svæðinu og frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar á Blönduósi segir í samtali við Ríkisútvarpið að það sé mikill hugur í fólki að reyna að snúa þróuninni í byggðarlaginu við.

Á fundinum voru ræddar hugmyndir um atvinnuuppbyggingu fyrir Austur-Húnavatnssýslu sem tilgreinar eru í greinargerðinni, þ.e. að koma upp gagnaveri á svæðinu, framleiðsla á bíódísel úr dýrafitu og koma upp einhvers konar stóriðja en í greinargerðinni kemur fram að viðræður um byggingu álvers í Skagabyggð séu á byrjunarstigi.

Í greinargerðinni segir að „langtíma fækkun íbúa og samdráttur í atvinnulífi Austur-Húnvatnssýslu stefnir í að héraðið verði ekki sjálfbært um margskonar þjónustu og grunnstarfsemi. Efling þess atvinnulífs sem er ekki til staðar mun ekki ein og sér hafa þau áhrif á íbúa- og atvinnuþróun að hún nægi til að skapa nauðsynlegan vöxt. Mun meira þarf til.“

Þá kemur fram í greinargerðinni að íbúum Austur-Húnavatnssýslu hafi fækkað um fjórðung á síðustu 23 árum. Árið 1990 hafi íbúarnir verið 2.542 en árið 2014 voru þeir orðnir 1.886 talsins og hefur því íbúum fækkað um 656 á tímabilinu. Valgarður segir í samtali við Ríkisútvarpið að skýrslan sé kolsvört af því leyti til að íbúaþróunarkaflinn sé kolsvartur.  

„Þetta er svæði sem er í algjörri hnignun. Það hefur ekki verið atvinnuleysi hérna, en það er vegna þess að menn hafa bara flutt í burtu," segir Valgarður og bætir við að á fundinum hefði það sjónarmið komið fram að íbúaþróun svæðisins hefði verið svo slæm á síðustu árum að ef hún yrði ekki stoppuð strax, þá yrði mjög erfitt að gera það síðar.

„Við munum ekki sleppa neinu tækifæri sem gæti orðið til þess að mæta þessari miklu þörf," segir Valgarður í samtali við Ríkisútvarpið og tekur fram að það sé mikill hugur í fólki að reyna að snúa þróuninni í byggðarlaginu við. „Ég held að menn geri kröfu til þess að bæði forsvarsmenn svæðisins og stjórnvöld taki sameiginlega á þessu máli, þannig að gagn verði að," segir Valgarður.

Í frétt Ríkisútvarpsins er svo vitnað til pistils Guðmundar St. Ragnarssonar sem birtur var á Húnahorninu í gær þar sem Guðmundur hvetur Húnvetninga til að mæta á fundinn. Guðmundi finnst greinargerðin kolsvört og að færa megi fyrir því rök að sveitarfélögin á svæðinu ættu að skipa einhvers konar neyðarnefnd sem hafi það hlutverk að bregðast við vandanum þegar í stað.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga