Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:44 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær var undirrituð viljayfirlýsing um fjármögnun á byggingu 120 þúsund tonna álvers sem fyrirhuguð er við Hafursstaði í Skagabyggð. Fyrirtækin sem standa að fjármögnuninni eru Klappir Development ehf. og China Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering and Construction (NFC).
Í fréttatilkynningu frá Klöppum Development segir að félagið vinni nú ásamt NFC að hagkvæmniathugun vegna byggingar og reksturs fyrirhugaðs álvers. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður rúmir 100 milljarðar króna (780 milljónir Bandaríkjadala). Áætlanir gera ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma.
„Þetta er mikilvægur áfangi í undirbúningsferlinu. Klappir og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra fagna því að jafn öflugur og traustur aðili og NFC skuldbindi sig til þátttöku í þróun verkefnisins. Framboð á nauðsynlegri orku mun ráða því hvenær hægt verður að hefja rekstur álvers að Hafursstöðum,“ segir Ingvar Unnsteinn Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa Development, í tilkynningunni.
Í fréttatilkynningunni kemur fram að viljayfirlýsingin byggi meðal annars á samstarfssamningi á milli sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og Klappa Development, en þar hafi Sveitarfélagið Skagafjörður og Húnaþing vestra ákveðið að starfa með Blönduósbæ, Húnavatnshreppi, Sveitarfélaginu Skagaströnd og Skagabyggð, sem áður höfðu undirritað samstarfssamning við Klappir um uppbyggingu og rekstur álvers að Hafursstöðum.
Í viljayfirlýsingunni á milli Klappa Development og NFC er kínverska samstarfsaðilanum falin svokölluð alframkvæmd verkefnisins. Samkvæmt yfirlýsingunni ábyrgist NFC fjármögnun að minnsta kosti 70% kostnaðar við framkvæmdina og uppbyggingu innviða í gegnum kínverska eða aðra banka, auk þess að ábyrgjast byggingu allra mannvirkja sem og rekstur álversins á meðan uppkeyrslu þess stendur.
Klappir Development er íslenskt félag sem hefur undanfarin ár unnið að undirbúningi álvers en upphaflega stóð til að reisa álverið á Bakka við Húsavík.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |